Tveir af eigendum gistiheimilisins, þau Sturla og Kristín,
hafa rekið matvöruverslun í sama húsi síðan 1988 og byggingavöruverslun síðan
1996. Húsið var upphaflega byggt og
teiknað með því hugafari að reka í því gistiheimili eða hótel. Það var þó ekki fyrr en síðla sumars 2009 sem
ákvörðun var tekin um að hefja framkvæmdir.
Veturinn 2009-2010 hófust því framkvæmdir á byggingu
gistiheimilisins, sem hafði verið fjarlægur draumur þeirra hjóna í 21 ár. Rýmið sem notað var fyrir reksturinn hafði
staðið auður í öll þessi ár og því tilvalið að nýta það undir þessa
atvinnugrein sem virðist vera ört vaxandi hér á landi.
Ákveðið var strax í upphafi að allur aðbúnaður yrði sem
bestur. Herbergin voru öll höfð rúmgóð
og með sér baðherbergi. Rúm, sængur og
rúmfatnaður voru valin af kostgæfni og góðir skápar hafðir í öllum
gistirýmum.
Morgunverðar-/veitingasalurinn var hannaður með því tilliti að hann
nýttist einnig til fundarhalda og ráðstefna.
Þar var komið fyrir breiðtjaldi, góðu hljómflutningskerfi og leðurstólum
sem fara vel með bæði gesti og fatnað þeirra.
Salurinn nær utan um a.m.k. 50 gesti í sæti.
Gistiheimilið var svo loks opnað í júní 2010. Til þess að auka þjónustuna enn frekar standa
nú yfir framkvæmdir á eldhúsi sem ætti að geta sinnt matseld fyrir 50 manns.
Gistiheimilið er rekið af þeim hjónum Kristínu og Sturlu,
ásamt dóttur þeirra, Erlu Lind og Sigursteini eiginmanni hennar.
|