|
 Rif er lítill bæjarkjarni sem staðsettur er á norðanverðu Snæfellsnesi, milli Ólafsvíkur og Hellissands.
Gistiheimilið stendur við Rifshöfn og
um 100-200m frá Rifsós þar sem finna má fjölskrúðugt fuglalíf.
Komið hefur verið upp fuglaskoðunarhúsi við syðsta ósinn til að
auðvelda fuglaunnendum starf sitt.
Á Rifi er einnig eitt stærsta kríuvarp Evrópu sem lífgar verulega upp á þennan litla bæjarkjarna á sumrin.
Gistiheimilið Virkið býður upp á sjö 2 manna herbergi og eina 4-5 manna íbúð. Í öllum herbergjum er sér baðherbergi og er hvert herbergi er um 20m2. Stórir gluggar eru á húsinu og því gott útsýni að Snæfellsjökli, Breiðafirði, höfninni og fuglalífi.
Íbúðin er um 70m2, með baðherbergi, eldhúsi, sjónvarpi og svölum og er því tilvalinn kostur fyrir fjölskyldur eða hópa. Þráðlaus nettenging er í öllu húsinu.
Morgunverðarsalur og bar er í risi sem einnig er tilvalinn sem ráðstefnu- og fundarsalur.
|